Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2010

Tíminn fljótur að líða!

Já eins og fyrirsögnin segir þá er tíminn búin að vera asskoti fljótur að líða! Komnar þrjár vikur síðan ég lenti hér í baunalandi! Áður en maður veit af gæti maður verið á leiðinni heim! En allavega þá fórum við í Djurs sommerland á laugardag! Sjíí hvað ég ætla aldrei í rússíbana aftur! Mér leið ekkert smá illa þegar ég var komin úr Thors Hammer! Þetta var hrikalegt, ég og Jette öskruðum villt og galið, mér fannst þetta ekki sniðugt þegar ég var komin úr honum! Ég hristist og skalf eins og ég veit ekki hvað í korter! En skemmti mér samt drulluvel fyrir því :)

Svo er ég ekkert búin að ákveða hvað skal gera á næstunni! Ætla að sjá hvað verður með næstu helgi, því að ég held að þau séu að fara til Sjállands.. og ég þekki bara svo fáa á sjálandi að það verður bara að koma í ljós... :)

En þrjár vikur engu að síður komnar í pokann :)

Love 

MaX


Jiii!

Ég er sko ekki að hata það að vera hér! :) En þó svo að maður sé ekki búin að kynnast neinum í þessum bæ að þá bíður hann upp á mikið... :) Hef líka haft tíma til að hugsa hvað maður eigi að gera og svona þegar maður loks kemur heim...

En annars er vikan búin að vera ágæt, fyrir utan rok og rigningu... og í dag er fyrsti sólardagurinn í langan tíma, enda var ég mjöööög ánægð þegar sólin mætti í morgun... enda notaði ég tíman og skrapp út í sólina, svona til að líta ekki út eins og ísbjörn :P Það er bara ekki fyndið hvað maður er rosalega hvítur miðað við alla aðra... :/ Enda ætla ég að vinna í því að vera aðeins brúnni ef að sólin nennir að vera á lofti hér ;)

En á morgun verður farið í DJURS Sommerland.. :) Gvuuuð ég þarf að byggja mig andlega upp í að fara í Piraten, sem er rússíbani...

Sjííí ;)

LOVE 

MaX


Helgin :)

Helgin var æðisleg í einu orði sagt, fyrir utan það að myndavélin mín hætti að virka...! Urrg!

En hvað um það, ég gerði voðalega lítið á föstudeginum, við fórum jú í Randers Storcenter til þess að fara í Kvickly... jii hvað ég elska þá búð! Skoðaði mig um, ætla sko að kaupa mér fyrir iPodin eins og Bent keypti fyrir sinn og kostaði ekki nema 250 kr danskar! Keypti mér strigaskó á laugardaginn, þannig að ég get hætt að nauðga stígvélunum... :) Skórnir voru á spottprís og kostuðu ekki nema 25 kr danskar... ánægð með það... ætla líka að kaupa mér Kawasaki skó sem að kosta ekki nema 100 kall danskar, þannig að það verður bara gaman að eiga strigaskó hér! Eftir að var búið að kaupa sér skó, fórum við öll fjölskyldan út að borða... Fékk sko bestu samloku í heimi.. Jummm, með kjúkling, skinku, beikoni og allskonar grænmeti... Ekkert smá góð!

Eftir að ég var búin að borða með þeim fór ég beint niður á rútustöðina til að skreppa til Árósa! Tók bara rútuna af því að ég nennti engan vegin að labba niður á lestarstöð... :) Þegar ég var komin til Árósa var Stine að bíða eftir mér... við fórum og versluðum fyrir Sylvíu og svo heim!
Fórum svo og gerðum okkur til og skruppum niður í bæ... fengum okkar að éta og keyptum okkur öl! Mér finnst æðislegt að geta labbað bara inn í næstu búð til að kaupa bjór, en ekki þurfa að fara í áfengisverslun sem er svo ekki opin alltaf! En við röltum um í rigningunni og fórum á staðin þar sem að við ætluðum að hitta einhverjar stelpur.. Staðurinn heitir Bodegaen! Sátum þar til kl. rúmlega 22, þá færðum við okkur yfir á Heidi´s.. Sem er bara snilldar staður! Þar má dansa upp á borðum og bekkjum og er eindregið mælt með því að það sé gert :) Þetta kvöld var bara stuuuuð! Skemmti mér allavega þrusuvel!
Fórum svo heim með Natbussen! Var svo vöknuð um átta þar sem að ung dama vakti okkur! Fór svo heim aftur með rútunni!

Ég notaði daginn í gær að sofa og ekkert nema sofa :) Enda hefði ég ekki getað verið vakandi allan þennan tím hvort eð er!

En svona var helgin! Næsta helgi ber með sér Djurs sommerland :D Vahúú! Hlakka svo til :)

Er farin! 

MAX


Föstudagur!

Jæja, vikan hefur verið mega fljót að líða! Þrátt fyrir rigningu, þriðjudag og miðvikudag að þá leið vikan samt ótrúlega fljótt fyrir sig :) Randers vikann er byrjuð, þannig að það er nóg um að vera þessa vikuna! Ætlum að fara á morgun niður í bæ öll og skoða okkur um og kíkja á mannlífið, það verður sennilega stuð. Svo ætla ég að skreppa niður til Århus og hitta hana Stine, fer með henni í afmæli, þannig að það verður stuð að skoða aðeins meira mannlíf.. :)

Í kvöld elda ég, það verður bara stuð að sýna þeim hæfileika mína í þeim efnum :)
Svo næstu helgi verður farið í DJURS sommerland :D Ég er farin að hlakka svo til :D Bent ætlar að neyða mig í stærsta rússibanan, spurning hvort að maður komi lifandi út úr því... :) Hann er hæðstur 32 metrar og fer upp í 90 km/klst! Jísss! Ég þarf að undirbúa mig andlega fyrir þetta alla vikuna! En hlakka samt sem áður til að fara.. 

Svo fæ ég von bráðar pakka heiman frá, með hlutum sem að ég gleymdi ... :P Það verður bara gaman að fá hann ;)

En ég ætla að fara að gera eitthvað :)

MAX


Vika!

Þá er maður búin að vera hér í Randers í viku og einu degi lengur :) Hef allavega skemmt mér vel við það að skoða miðbæinn og sjá hvað hann hefur upp á að bjóða.. :) Búin að finna margt fróðlegt! Er meira að segja búin að týnast næstum því... labbaði hring! :) Gáfaða ég! En helgin var fín! Var reyndar ein með börnin á laugardag og fram á sunnudagsmorgun, þannig að við fórum í Randers Rengskov! Það var stuð! Fannst samt ekkert sniðugt að sjá slöngur á lausagangi...!

Svo í gær sunnudag fórum við á fótboltaleik .. Randers FC vs Lyngby! Það var stuð! Fékk mér stærstu pylsu sem að ég nokkurntímann hef séð.. hún var stærri en bjúga og kallaðist pulsa! 

RISAPYLSA















Hún smakkaðist samt vel :) 

En í dag er búið að vera grámyglulegt! Fojj! Ekta Íslenskt veður!
En það er nú margt framundan... er að hugsa um að fara á Dizzy Mizz Lizzy á fimmtudag og svo kannski mögulega að fara til Stine um helgina... þetta kemur allt saman í ljós ;) Ójá svo er ég loksins að fara í DJURS sommerland :D :D Vá hlakka svo til ! :P

En nóg í bili :)

MAX


Halló Randers :)

Þá er maður komin út til Danmerkur.. Ferðin gekk bara nokkuð vel út... En samt hundleiðinlegt að sitja í flugvél og svo að sitja í lest í rúma fjóra tíma.. En það var allt í lagi :) En fjölskyldan kom og sótti mig á lestarstöðina hér í bæ og svo var haldið heim á leið og fengið sér að borða og svona.. :) Fyrsti dagurinn var bara mjög fínn ...

Í gær fór ég svo eftir að ég var búin að vera með stelpuna, niður í miðbæ að skoða.. Ekkert smá krúttlegur bær... eldgömul hús og skrítin uppsettur.. ég allavega gat týnst við það að skoða mig um.. Ég fór nú líka í H&M og skoðaði.. fann mér tösku sem að mér langar í .. en það bíður bara... svo verð ég að fara að kaupa mér skó.. ætla sko ekki að labba í þessum sem að ég tók með mér.. mér var ekkert smá illt í fótunum eftir að ég var búin að labba... 

Svo er maður bara búin að hafa það rólegt og kynnast börnunum.. ég og Magnús spiluðum helling í gær.. UNO! Staðan var 3-1 fyrir mér í gærkveldi... :) Svo er maður líka búin að vera að hoppa á trampolíninu sem að er í garðinum... :)

En nóg um það... ég ætla að fara að vafra.. :)

MAX


4 dagar!

Jæja, þá eru aðeins 4 dagar í vrottför til Danmerkur, enda ætla ég að njóta þeirra síðustu sem að ég hef hér með minni yndislegu fjölskyldu og vinum... :) Er víst að fara eitthvað í kvöld með Eiginkonunni og Jóni, verður spennó að sjá hvert það leiðir... :) En annars hefst pakkið á morgun.. þarf að sækja ferðatöskurnar, sem hafa ekki verið notaðar síðan hann faðir minn kom heim fyrir meira en ári síðan..
En er farin að hlakka til að fara.. :) Get allavega ekki sagt annað.. Verslunarmannahelgin fór í gæslu á Landsmóti og svefn..

Þarf að fara að gera lista yfir það sem að tekið verður með út... er cirka búin að flokka fötin sem ég ætla að taka með mér.. allavega búin að gera heila hillu fyrir það sem að fer ekki með... 

Svo verður maður árinu eldri á morgun... :/ That is a mix of emotions... Svo fer ég bara á laugardag... var að spá í að kíkja á Gay-pride.. en hugsa að það sé frekar knappur tími að vera að þvælast þangað og svo aftur heim til þess að fara aftur suður... Kemur í ljós..

En allavega þarf að fara að finna til föt fyrir Surprisið sem að Ólöf og Jón eru að plana.. :)

Óver and át!

Þið heyrið í mér frá Dk næst sennilega...

 

MAX


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband