Þið segið það já?!
21.4.2008 | 13:19
Já, ætla að koma með smá leiðindi fyrst... vill fólk vinsamlegast skrifa í gestabókina eða kommenta á síðuna! Annars fer maður bara að læsa henni!
En já allavega, þá er bara búið að vera brjál að gera sko.. Er alltaf að læra, alltaf að vinna og stundum upp í sveit! Svo reynir maður að slaka á á milli! En það er ekkert að ganga.. komin með bauga niður á brjóst! Liggur við! En ég er mjög ánægð með einkunina sem að ég fékk fyrir lokaverkefnið í félagsfræði. Verkefnið var um fíknefni og fékk ég 8,5 fyrir það Ekkert smá ánægð sko! Svo var Íslenskupróf á síðasta fimmtudag og komu niðurstöður nokkrum klukkutímum seinna.. fékk ekki stúlka bara 7,5 fyrir það! Vissi bara svarið við 2 spurningum, annars notaði maður bara útilokunaraðferðina! Fengum að hafa hjálpargögn, eitt blað með því sem að okkur fannst vera aðalatriðin! Nice
En annars þá var helgin þannig að ég ætlaði að drekka á föstudag, en var of þreytt til þess, keyrði í staðin, þar sem að komu upp smá vandamál hjá vini.. En það er allt komið ílag nún, sem betur fer... Svo var maður vakin á laugardag... beðin um að koma fyrr í vinnuna.. gerði það, var að vinna til 17.. Fór svo og sótti Rasmus til að keyra hann upp á Miðfossa svo hann gæti æft sig fyrir prófið sem að hann átti að fara í í morgun.. svo var bara farið heim og klætt sig í önnur föt og bíllin keyrður upp á Hvanneyri og var farið á barin og spilað, laufa sjöa... SNILLLLD!
Svo fékk maður að gista hjá Söruh og Guðna og við ræðum það ekkert meira!
En nú er maður að fara að byrja á lokaverkefni sem að maður á að skila á miðvikudag..
Þannig að ég er farin
Síja
Magga
Athugasemdir
málið er bara það að það er geggjaðslega leiðinlegt að commenta á síðuna þína þar sem þeir sem eru ekki með blog.is þurfa að fá samþykkt commentið í gegnum hotmailið og maður þarf að fara þangað inná til að geta commentað... vesen. EN jæja magga, þú segir alltaf eitthvað "við ræðum það ekkert frekar hérna" þú ert bara að bíða eftir að maður spyrji þig þannig að ég spyr hvað meinaru með því magga mín?
Hafdís Bára (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 17:03
Ég var hér..
Maren, 21.4.2008 kl. 18:17
SKoooo, hafdís mín, kemuru ekki á föstudag.. ég segi þér það þá;)
Margrét Hildur Pétursdóttir, 21.4.2008 kl. 19:01
hæhæ hérna á kvað bara að kvitta:) var að lesa en það er bara alveg að koma að áshátíðini:) geggjað spenno:-O ;) en já við varðum í bandi þurfum að fara að hittast í sambandi við laugardaginn:)
boggan
Siurborg (IP-tala skráð) 21.4.2008 kl. 22:11
Ég rak við.... nei meina ég rak inn nefið
Ólöf María Brynjarsdóttir, 22.4.2008 kl. 10:54
Hahahahaha:)
Margrét Hildur Pétursdóttir, 22.4.2008 kl. 12:53
Ég var hér, og ég er hér
Ragnar Gunnarsson, 22.4.2008 kl. 17:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.