Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
Geðveik fjallaferð:)
24.2.2008 | 21:01
Vávává! ég er eiginlega bara í móki ennþá, að hafa komist LOKSINS upp á fjöll í alvöru fjalla bíl
Og var þetta faratæki mitt í ferðinni undir góðri stjórn hans Ella Það var haldið af stað kl. 9:30 mæting var 8:30... En hvað um það við lögðum af stað í geðveikt góðu veðri og héldu sem leið lá uup í Lundareykjadal og þaðan í gegn alla leiðina upp á Skjaldbreið Vá ég er enn bara yfir mig af spenningi hvað það var ótrúlega GOTT veður.. Þetta var FRÁBÆRT Við fórum s.s. upp á Skjaldbreið og þar var stoppað og grillaðar Pulsur og Hammarar, geggjað góðir hammarar
En já þessi ferð var bara skemmtileg! Langt síðan maður hefur farið svona, þetta er það skemmtilegasta sem að ég geri
En svo ein mynd af útsýninu í lokin
ÉG kveð að sinni, ætla að fara í sturtu og leggja mig
Maggzz, fjallageitin fundin
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur
21.2.2008 | 23:25
Já, þá er aftur að koma að helgi.. og er helgin eiginlega fullbókuð með vinnunni. Þannig er helgin að ég fer að vinna í fyrramálið, þar sem að ég er búin með áfangan í lífsleikni Híhí! En svo ætla ég að sofa aðeins á föstudagskveldið, af því að ég þarf að fara með Kidda suður á Keflavíkurflugvöll að skutla mömmu og pabba.. Svo þarf ég að mæta í vinnuna kl. 12 á laugardag og svo er kveldið það óákveðið.. þannig að ég er opin fyrir uppástungum.. En svo þarf ég að vera vöknuð fyrir kl. 8 á sunnudag, af því að það er plönuð fjölskyldu fjallaferð með björgunarsveitinni.. þar sem að familían verður að gera eitthvað annað, þá bauð ég honum Rasmusi með.. Það verður bara gaman..
Svo er bara skóli og skóli í næstu viku..
Nenni ekki að hafa þetta lengra er að fara að sækja mömmu
Maggzz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
...
19.2.2008 | 21:04
Já eins og er á ég að vera að læra fyrir próf sem er í fyrramálið, en hef mig einhvernvegin í það! Er ekki að nenna að fara að lesa 2 kafla fyrir próf á morgun.. en eins og vanalega er ég alltaf á seinustu stundu! En hvað um það!
Svo eru þessar óeirðir í Danmörku sem er alveg að fara með mig... Þegar ég heyrði að þetta væri ekki bara í Köben heldur líka í Odense.. það munaði að ég fengi kast og bæði pabba um að hringja í Björgvin og spyrja hvort að það væri ekki lagi með allt "heima"! En ég held að það sé nú bara allt í lagi.. annars væri Björgvin búin að hringja í pabba og láta hann vita...
Ég vona bara að fólk fari og hugsi aðeins...
En svo er bara miðvikudagur á morgun.. og pabbi fer bráðum "heim" En hann kemur heim um páskana! Mamma og pabbi fara út á laugardagin og mamma ætlar að fara fyrir mig í BILKA!! Ég ELSKA BILKA! Mér langar að fara með þeim!
En ég ætla að fara að læra eitthvað svo að ég nái prófinu á morgun
Maggzz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Helgin búin:(
18.2.2008 | 02:09
Jájá, þó svo að helgin hafi mistekist í því að djamma, þá er alltaf næsta helgi.. En ég hefði nú samt vilja djamma þessa helgi af því að maður var nú á frí helgi, en ég tek þetta allt á næstu helgi!
Það mætti samt eitthvað vera að gerast í þessu blessaða bæjarfélagi, aldrei neitt um að vera.. Bara á hátíðisdögum og þannig.. Þetta endar ábyggilega með halla á sölu ÁTVR af því að það er ekkert um að vera hér.. En það er ekki mitt vandamál En ég var bara að keyra fyrir hann Rasmus á Föstudag og svo var ég bara heima á laugardag og hló eins og fáviti yfir dönsku myndinni sem var á stöð 1.. Regel Nr. 1! Hún var snilld.. Mamma ætlar að finna hana fyrir mig þegar hún fer út á laugardag með pabba. Elska min mor og far!!
En svona eins og ég sé vikuna fyrir mér... skóli og aftur skóli, læra og læra, vinna og eitthvað svona..
Næsta ferð til Dk verður ábyggilega farin í sumar, vonandi með henni Kötu minni og familíunni minni.. langar svo mikið til að hún komi með út! Það yrði svooo gaman, fara í lestarferð til Köben og hitta Troels og sona.. Það yrði bara æði.. Þarf bara að finna út úr því hvenær restin af familíunni ætlar að fara.. ég reikna samt með að það verði farið í kringum ammælið mitt eins og vanalega.. en það er bara fínt..
En ég ætla að fara að finna mér einhverja mynd til að horfa á meðan ég er að bíða eftir því að ég þurfi að sækja Óla bróðir niður á Hyrnu...
Later
Maggzz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Dæs!
14.2.2008 | 23:09
Já, nú er ég sko ekki sátt... Hann pabbi minn átti að koma heim í nótt, en nei, hann kemur ekki heim fyrr en á morgun vegna bilunar í flugvél! URRRRR! Ég þoli ekki sona... Arrg! Það verður í fyrsta lagi flogið heim kl. 10 í fyrramálið! Svo er Óli bróðir og Hyrnan að fara til DK í nótt og hann er akkurat að taka sig til núna!
En ég var að koma heim af fundi, fengum krakkana og umsjónarmennina af Skaganum í heimsókn og mér fannst það bara koma nokkuð vel út Þurfum að fara til þeirra og verður það gert bráðlega...
Í gær var planið að fara suður til RVK og fara í bíó með Óla og Rasmusi, en það var ekki gert. Við ákváðum í staðin að fara og panta okkur pizzu og hafa það kósý og horfa á vidjó.. Gvööð það var svo gaman í gær:) Margt sem var rifjað upp og talað um:)
Takk strákar mínir:)
En ein mynd sona í lokin
Maggzzz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kvart!
11.2.2008 | 23:09
Já, smá kvart frá mér.. Þarf að segja hvað ég er ógisslega þreytt! Ég var vakandi til kl 3 í nótt að gera ritgerð. Náði að klára hana, með herkjum, þ.e.a.s. Ég var líka MJÖG fegin þegar ég var búin með hana. Þá getur maður aðeins farið að slappa af kannski... En ekki mikið!
Jæja, en það er ekki mikið að frétta. Pabbi er að koma heim á fimmtudag, Óli að fara út á Föstudagsmorgun og ég ætla á fyllerí! Neee, það er allt spáningur hvað maður gerir um helgina, kemur í ljós. Ætli það endi bara ekki á því að maður sitji heima og horfi á imbann! Bíð bara eftir að Kata mín komi heim í nesið svo að maður geti djammað eitthvað, eða maður kíkji í Njarðvík til Hafdísar, eða maður plani eitthvað.. En það er bara málið að það er aldrei neitt um að vera hérna.. Ekkert smá leiðinlegt! Manni leiðist svo að búa í svona bæjarfélagi þar sem að það er ekkert að gera.
En já, svo fer bara alveg að styttast í Ingibjartarsonin Ég er svo spennt, bæði sjálf og fyrir því að hún sé að verða mamma, hún á eftir að verða svoooooooooo góð mamma! Hlakka svo til!
Já svo horfði ég á One Tree Hill áðan, sjitt! Ég vissi ekki hvert ég ætlaði. Ekkert smá góður þáttur.. Æjjj, en aumingja Nathan.. Ég grét liggur yfir þættinum sko!
En ég ætla að fara að fara í sturtu og fara svo að lúlla mér
Maggzz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þetta er að verða nóg!
9.2.2008 | 18:21
Er ekki komið nóg af vondu veðri? Maður er alveg að klébrast á þessum vindi og öllum þessum óveðrum! Ég vissi ekki hvert ég ætlaði í gær þegar ég kíkti út um gluggan minn. Enda svaf ég inni hjá henni móður minn útaf því, var þá ekki ljósastaurin sem er beint fyrir utan gluggan minn orðin skakkur og haltur bara, hausin á staurnum snýr í átt að glugganum mínum og staurinn bara skakkur.. það mætti halda að hann hafi litið upp og sé að ákveða að færa sig um set! En þetta veður í gær var bara eitthvað rugl! Var kölluð út í gær og fór náttúrulega.
Já, ég get nú sagt fyrir minn part að ekki var það gaman að vita af því að maður sé í einhverjum 60+ metrum einhversstaðar... sá nefnilega á vegagerdin.is að það hafi slegið yfir 60 metra í hviðum og svo var mælirinn sprunginn... Ekki í fyrsta skipti það! En það er í lagi...
En nú þarf maður að fara að læra.. Ef einhver veit mikið um Freyju af vanaætt í norrænni goðafræði, þá væri það mjög hjálplegt.. Er nefnilega að reyna að skrifa ritgerð.. Gengur ekki vel.. er að blogga í staðin:)
Endilega kommentið eða skrifið í gestabókina.. svo maður fái nú að vita hverjir eru að skoða hjá manni síðuna...
Maggzz - menntaskælingur í Borgarnesi:)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Allt ófært?!
7.2.2008 | 11:03
Jájá, ég get nú bara sagt það að ég var að keyra heim áðan til að sækja Óla og skutla honum í vinnuna.. Jájá ekkert mál, nema það á leiðinni heim.. þessa stuttu vegalengd, þá var var bara skafrenningur og drulla.. skaflar út á miðja götu, sem að ég tók ekki eftir fyrr en ég var á leiðinni heim! Vá það ætlar bara ekki að manni að ganga.. En það er það sem er gott við að vera á jeppa, maður setur bara í fjórhjóladrifið og keyrir svo af stað... Ég elska að eiga jeppa!!:P Það er svo gaman.. En mér eillega langar bara til að fara á snjóbretti... það er svo mikill snjórr! Liggur við að maður panti sér bara eitt stykki bretti og fái það sent heim svo að maður geti nú farið á bretti!
En annars er bara FULLT að gera í skólanum.. ég þarf að reyna að klára ritgerðina mína um Freyju.. Það gengur ekkert of vel, mætti ganga betur sko! Jájá ég ætla að fara að læra... eða lúlla! allavega að fá mér að éta.. er að elda mér pasta:)
Síja!
Maggzz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað er í gangi??
3.2.2008 | 20:15
Nú var ég að koma heim af Akureyri.. Og fer og les fréttirnar eins og óð manneskja. Sé ég ekki þá að ákveðin stjórnmálamaður ætli að setja af stað lagafrumvarp um að Björgunarsveitamenn verði í varaliði lögreglu! Er ekki í lagi?? Ég er í björgunarsveit og ég myndi ekki vilja standa í einhverjum óeirðum og kjaftæði.. bara sorríí! Þetta myndi aldrei virka.. Ætla þeir þá að fara að borga manni fyrir að vera á staðnum ef að eitthvað kemur upp á? Björgunarsveitarstarfið er í sjálfboðavinnu.. ef að ég myndi þurfa að fara í eitthvað sona varalið þá myndi ég nú vilja fá borgað fyrir það! En þetta er bara mín skoðun...!
En eins og ég segi þá var ég að lenda heima, nýkomin heim af Akureyri:) Gvöööð hvað það var yndisleg... þetta var sko skemmtilegt! Við lögðum af stað ég, Nannett og Rasmus kl 13:30 á föstudag og keyrðum sem leið lá norður.. vorum komin norður um 18:00 og fór ég í ríkið með henni Kötu minni og Nannett og Rasmus fóru sína leið:) Svo fórum ég og Kata heim til hennar og fengum okkur eitthvað í gogginn:) Svo var bara farið að hafa sig til fyrir kvöldið og byrjað að fá sér bjór og sona:) Svo fórum við á Kaffi Akureyri og var bara ágætt þar, þar dönsuðum við og dönsuðum og vorum ekki komnar heim fyrr en um hálf 6 leytið:) En svo var bara vaknað og fengið sér að borða á lau og svo fór Kata í skírn og á meðan var ég heima og SVAF! Svo var ákveðið að vera soldið hressari fyrir kveldið og fórum við að gera okkur tilbúnar aftur til að fara á Dave Spoon.. Nannett kom með okkur og við skemmtum okkar bara ótrúlega vel;)
En nóg um það.. ég ætla að fara að reyna að læra:)
Maggzz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)