Færsluflokkur: Bloggar
Á maður að blogga?
10.11.2008 | 08:34
Já, snemma morguns og ég er eiginlega ekki að nenna að vera í tíma..
Það sem að er búið að vera að gerast er..
*Skóli og endalaus skóli..
*Vinna og vinna...
*Tók óvænt upp á því með stúlkunum að skreppa suður í Rvk á föstudag:) Það var æði.. enduðum á Hressó
*Fór á árshátíð Hagkaupa á laugardag og skemmti mér bara ótrúlega vel..
*Slappaði svo af í gær.. sem var bara næs..
En það sem er framundan
Skil á ritgerðum, vinna, skátar, síðasta passið í kvöld:( og svo það sem að kemur upp á meðan:)
Magga
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Komin heim!
30.10.2008 | 13:41
Já, nú er maður bara komin heim á Íslandið góða! En hefði samt viljað vera aðeins lengur úti, bara til að slappa af meira, þó að maður hafi eiginlega ekki gera annað en að sofa og læra En ferðin heim gekk bara rosavel, engar seinkanir eða neitt.. flugið var meira að segja aðeins á undan, alveg um heila 20 mínúturVar vöknuð kl. 05:00 að íslenskum tíma (06 að dönsku) lagði þá af stað í strætó niður á lestarstöð kl. hálf 7 að dönskum Sæll! En var komin niður á lestarstöð kl. 07 og beið með pabba þangað til að lestin kom En svo kom að því að þurfa að kveðja hann pabba og það var ekkert smá erfitt, en það er alltaf erfitt Fór næstum því að gráta þegar ég kvaddi pabba og sá hann labba upp stigan En svo tók við rúmlega 2 tíma lestarferð á Kastrup. Þangað var ég komin um tuttugu mínútur í 10 og innritun byrjaði 16 mín yfir 10.. það er óþolandi að bíða þangað til að innritun hefst En annars þegar ég var komin upp þá leið tíminn eins og ekkert væri, allt í einu var klukkan að verða korter í 12 og ég átti að fara inn að hliði.. en það er gott þegar að tíminn líður á flugvellinum. En var komin heim 14:15 held og mætti mömmu og Rönku úti þegar ég var að athuga hvort að þær væru ekki komnar og viti menn, þær voru að stíga út úr bílnum..
En það var bara æði að vera hjá pabba, slappaði af eins og ég veit ekki hvað og gerði sáralítið meira, en að fara til Holstbro á síðasta föstudag og vera hjá minni yndislegu Nanett
Hef þetta gott í bili, er farin að læra í náttúrufræði
Maggz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
...
26.10.2008 | 20:28
Jæja, nú eru bara nokkrir dagar þar til að maður fer heim Og þá lýkur slökuninni hér í landi, ótrúlegt að maður þurfi að fara til annars lands til að slappa af!
En hvað með það, það eru bara rúmlega 2 dagar þar til að ég kem heim.. búið að vera fínt veður hér á meðan það er snjór á Íslandi.. piff! langar samt alveg í snjóinn..
Ætla bara að hafa þetta stutt:)
Ætla að fara að horfa á sjónvarpið:P
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Danmörk:)
23.10.2008 | 20:48
Æjj, vá ég er ekki að meika svona ferðalög, maður er enn þreyttur.. lagt af stað kl. 03 að nóttu og komin hingað um fjögur eða fimm að degi til:P
En allavega, er ekkert búin að gera hér nema að slappa af:) *næs* Er búin að liggja í rúmminu í alla dag eiginlega.. hef ekkert nennt að gera, reyndar labbaði niður í Fotex áðan og var að skoða aðeins.. það var fínt, langaði soldið til að kaupa skó, en hætti við:P
En ég ætla að fara að gera eitthvað:)
Maggz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14 tímar:D
21.10.2008 | 14:57
Jæja, ég er bara brátt að fara að flýja land í viku:) Nú leggur maður land undir fót og fer áleiðis til Odense í fyrramálið! Víhí:) Geggjað, nú fer maður í slökun, aðeins að slappa af og sofa kannski í nokkra daga, það væri fínt..
En ætlaði bara að láta vita af því að ég verð ekki við í viku, eða á landinu:)
Síja:)
Maggz:)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Flutt..
13.10.2008 | 00:12
aftur! Segjum í fimmta skiptið á tveimur árum:) Sæll! En hvað um það, þarf að fara í gegnum allt draslið sem að fylgdi mér hingað, en engum skóm verður hent! Hafðu það Kiddi! Engum! Ég er alfarið á móti því að fólk hendi skóm, af því að þeir koma aftur í tísku! Ekki henda þeim, ég skal taka þá;)
En hvað um það, ég er bara þreytt eftir þessa heldi, er búin að vera eins og hvirfilbylur alla helgina, sökum þess að það var verið að flytja og svo var útilega og svona..
En ég var búin eftir að labba upp þrjár hæðir með nokkuð marga kassa og svo fór ég í Fluguborgara upp í Flugu:P Næs, geggjuð norðurljós í gær;) Sjitt, held að ég hafi bara staðið úti í hálftíma og horft upp á stjörnurnar og norðurljósin:)
En ætla að fara að koma mér í svefn:)
Maggz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Morgundagurinn;)
7.10.2008 | 11:09
Æjj, já bara svo að ég segi það einu sinni enn, þá var ballið æðislegt! Hlakka til þess næsta:)
En hvað um það, aðrar fréttir, hann karl faðir minn er á leiðinni heim í 2 vikur;) Var að skoða póstinn sem að mamma fékk frá pabba í morgun og stóð þar að hann gæti ekki lært, það væri komin svo mikill spenningur í að koma heim;) Ekki skrítið, við erum ekki búin að sjá hann síðan hann fór út í ágúst held ég.. En mér er farið að hlakka til að sjá hann;)
En þegar pabbi kemur heim, þá á hann að mæta í víglsu þar sem að ég er að fara í uppgöngu og Kiddi LOKSINS að vígjast sem skáti;) Fænalí!
En svo er bara stutt vika í vinnunni, svo að búa Óla í þriðju og síðustu leit! Vonum að veðrið verði gott um næstu helgi..
Jæja, er í Íslensku...
Helga kviða Hundingsbana
Maggz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ball...
6.10.2008 | 08:25
Já ég get ekki annað sagt en það hafi verið gaman á þessu Sauðamessuballi;) Mikið fjör, fullt af fólki, allir í ullarpeysum svo maður telji eitthvað upp. En annars byrjaði kvöldið á því að ég kláraði að vinna, fór svo heim í sturtu og gerði mig til. Það var fólk að koma í heimsókn til Kidda bróður þar sem að hann átti afmæli á laugardaginn:) Við gáfum honum hettupeysu sem að hann er búin að horfa á mjög lengi;) en aldrei keypt sér hana...
En svo var fólk að koma í heimsókn í kjötsúpu.. mmmmm!
Svo var aðeins fengið sér í glas heima og svo var farið á ball með Upplyftingu..:) Held ég hafi ekki skemmt mér svona lengi;) En mætti hafa drukkið aðeins minna.. Því að maður var svolítið þunnur í gærmorgun:S
Þar sem að myndavélin mín var batteríslaus, voru ekki teknar neinar myndir:( En þetta lifir bara í minningunni:P
En ég vil þakka öllum fyrir skemmtunina og sjáumst aftur að ári á Sauðamessu 2009:)
Maggz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sauðamessa;)
3.10.2008 | 21:42
Jæja, þá er loksins komið að því;) Sauðamessa um helgina:) Byrjar kl. hálf 2 með rekstri niður í skalló, dagskrá endar held ég kl. 17.. og svo aðalparturinn;)
SAUÐAMESSUBALL!!!! Jeijjjjjjjj!!!
Upplyfting er að spila frá 22-02:) Allir að mæta á ball:)
En ekki mikið búið að vera um að vera.. er alltaf í skólanum og að vinna:) Gengur bara ágætlega fyrir utan helv.. stærðfræðina:P
En segi ekki meira, ætla að fara að klára nát verkefnið!
Magga Sauðslegu skapi;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jáhá:)
29.9.2008 | 11:50
Þið segið það:)
Ég gerði voðalega lítið um helgina annað en að sofa.. Skemmtilegt en satt, þá fór ég aðeins á rúntin laugardagskveldið af því að ég nennti ekki að hlusta á gaurana á efri hæðinni spila píkupopp og syngja með! Sjeet ég fékk bara ógeð.. það heyrðist hvaða lag þeir voru að spila og hvað þær væru að syngja...
Þannig að þegar ég var búin að taka nokkra rúnta þá fór ég heim og kom mér fyrir í sófanum.. og sofnaði.. og vaknaði ekki fyrr en níu á sunnudagsmorgun.. og lúrði soldið lengur..
En já svo að ég komi með nýjar fréttir, þá erum við að fara að flytja aftur.. Nenni samt ekki að vera að pakka í 4 skiptið á 2 og hálfu ári..! Ojj! Sem að þýðir að ég þarf að fara að taka til í mínu herbergi..
Össs!
Svo fer að styttast í hann föður minn.. ætli það séu ekki svona níu dagar þar til hann lendir á hinu gamla góða Íslandi;) Enda hlakkar manni geggjað til;)
En ætla að hafa þetta gott í bili:)
Maggzz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)