Bloggfærslur mánaðarins, maí 2010

Í sól og sumaryl!

Já..

Helgin hún var fín! Laus við foreldrar og alles, þannig að við systkinin héldum partý! Úje, en gvuuð hvað ég ætla ekki að fara að drekka Tekíla á næstunni... Mjeee! Kom "snemma" heim á laugardagsmorguninn eftir skemmtilegan rún!

Svo fór ég að vinna á laugardaginn í smástund og svo beint upp í Flugu í kvöldmat og kvöldvöku! Skemmtilegt það :) Það kvöld fór ég snemma að sofa! Var svolítið þreytt eftir föstudagskvöldiðBlush

Var svo vakin á sunnudagsmorgun og fór í morgunmat og að síga með litlu fálkana! Fjör það! Svo ákváðum við Ólöf að fara í sund og allt í lagi með það... nema hvað að þegar er sól að þá vill maður lit allsstaðar... Nei ég varð BARA rauð á nefinu og enninu og fékk fullt af freknum! En jæja... ég verð þá bara að nota brúnkukrem eða eitthvað til að samsvara enninu og nefinu!

En svo er það bara chill í vikunni... Leikrit á miðvikudag í 3 og hálfan tíma!! Ough!

En kveð í bili!

MAx


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband