Bloggfærslur mánaðarins, júní 2010

DIY :)

Ég alveg hreint elska að skoða DIY síður! Er stundum nokkrar klukkustundir að skoða svoleiðis síður! Er búin að gera eina spöng, sem að tókst mjöög vel að mínu mati og leit hún svona út...

photo_421.jpgphoto_422.jpg











Ég er ROSA ánægð með hvernig hún kom út! Næst á DIY listanum eru spennur, belti og töskur! :D Jólagjafirnar í ár, klárlega ;) Er reyndar næstum búin með eina tösku.. :) Hún er enn í vinnslu!

En það er voða lítið að frétta! Fer út til DK sennilega 8.ágúst! Búin að fá samninginn á eftir að senda hann út.. komst ekki í það í dag!

Lilli bró tvítugur í dag! Fórum og keyptum afmælisgjöf áðan, ótrúlega ánægð með það :)

Jæja, ætla að fara að sauma eða eitthvað :)

Síja!
MAX


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband