Tilhlökkun!

Já, ég ákvað að breyta aðeins til... Nenni ekki að vera yfir á hinu þar sem að það er ekki hægt að setja inn mynd líðandi stundar!! En hvað um það...

 Ætli það sé ekki tilhlökkun í manni þar sem að móðir mín og litli bróðir eru að koma heim bráðlega. Hef ekki séð þau í rauninni í 11. daga! Þar sem að þau hafa verið í Danveldinu mikla að skilja pabba eftir svo hann geti farið að læra!
Svo er ennþá meiri tilhlökkun þar sem að Hansi minn kemur heim eftir 4 daga! Eftir því get ég ekki beðið, vildi helst óska þess að hann kæmi bara heim með mömmu og Óla! En það eru enn nokkrir dagar eftir af HM og ég bíð þolinmóð og ekki þolinmóð eftir að hann komi heim! Ví!

Er að pæla í að fara á Gay-pride á morgun og fara svo heim aftur gera mig tilbúna og fara svo aftur suður á djammið í RVK! Í fyrsta skipti þar sem að maður er loksins komin með aldur til að gera eitthvað svoleiðis líkt!

En nú ætla ég bara að slútta þessu og fara að gera eitthvað...'

Margrét Hildur

Myndin sem ég ætla að setja hér er þessi!

Ýmislegt33 094

Pabbi gamli í fermingunni hennar Rakelar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband