23 dagar og 22 dagar!

Ekki gaman það... allt í einu þarf maður að fara kaupa Jólagjafir... ég reddaði nú þremur í gær, sem er fínt, á bara eftir að kaupa handa honum Hansa mínum og Óla Magga. Ég bara hef ekki grænan hvað ég á að gefa Hansa..! Þetta er búið að veltast smá í hausnum á mér, en ekkert sem að kemur upp sem að ég er ákveðin með að gefa honum. Ekkert neitt smá ósátt skooo!

En eins og fyrirsögnin segir þá eru ekki nema 23 dagar til JólaGasp og 22 dagar þangað til að ég verð karllaus og einmanna á klakanum! Hann Hansi er að fara heim og kemur bara ekkert aftur fyrr en í fyrsta lagi eftir nokkra mánuði! Þannig að maður verður bara með annan fótin í DK og hinn hér á landi.

En annars er það að frétta að ég er komin inn í Menntaskóla BorgarfjarðarTounge Ekkert smá sátt við að sjá að ég hafi fengið inn! Það er sko gott... annars verð ég bara eftir áramót í skóla og vinnu og svo með annan fótin í Danmörku. Þetta verður bara spennó!

Annars er mér ekkert farin að hlakka til að hann fari. Það er eillega bara leiðinlegt. Langar ekkert til að hugsa um það þangað til kannski nokkrum dögum fyrir... En þá kannski verður það verra ef að maður hugsar það þannig.. þá verður kannski bara meiri grátur? Eða bara æjj, maður veit ekkert hvernig maður á að láta þegar svona er. Á maður bara að vera happí og jollí eða á maður að fara í algjert þunglyndi og éta bara Macintosh um jólin þannnig að maður verði geðveikt feitur?

En allavega mér leiðist svo mikið að ég er búin að skrifa risablogg... Þarf samt að fara kaupa eitthvað Íslenskt nammi svo maður geti sent til Marie-Éve með jólakorti:)

Mér langar samt eillega soldið mikið til að fara að detta í það.. Ég á bjór og annan fljótandi vökva, en það er bara enginn til að djamma með.. annað hvort er fólk ÓLÉTT (ekki illa meint), einhverstaðar hinu megin á landinu eða einfaldlega bara búin að djamma of mikið síðustu helgar að það er komið á snúruna!! En það verður þá bara að hafa það!

En ég er farin að horfa á eitthvað í þessu blessaða sjónvarpi..

Later!!

Maggz


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kiddi Jói

Æææææ............   Á að hringja á VÆLUBÍLINN?????????

????????????????????????????????????????????????????
???????????????????????????????????????????????????

Kiddi Jói, 2.12.2007 kl. 22:19

2 identicon

Hahahahhahahahahahahhahahhah þú ert Svooooooo fyndin!!! :P

Magga (IP-tala skráð) 3.12.2007 kl. 19:07

3 identicon

jæja magga... þú verður nú bara að koma til Njarðvíkur að djamma... þýðir ekkert að húkka í nesinu að eilífu :S

Hafdís Bára (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 10:23

4 Smámynd: Kiddi Jói

Bíddu nú við, NJARÐVÍK!! Er eitthvað hægt að djamma frekar þar????

Kiddi Jói, 5.12.2007 kl. 16:41

5 identicon

Skooo frekar heldur en hér!!

Magga (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband