Birr.. Það er sko orðið KALT!

Já, ég er bara farin að halda að það verði ekkert haust, heldur veturinn byrji bara strax. Er ekki alveg sátt. Veturin á ekki að byrja fyrr en kannski um miðjan Október, en nei, hitastigið á mælinum mínum er 1,5° C!! Er ekki alveg sátt sko.. Mætti vera aðeins heitara, ekki svona rosalega kalt! Urr..

En hvað um það, var bara rétt í þessu að skríða inn á Hvanneyri úr vinnunni. Er mikið að spá í því að kúldrast bara undir sængina mína í náttfötin!! Er það ekki bara málið á svo ísköldum dögum! Burrrrr!

En annars er voðalega lítið að gera.. Hansi minn er búin að gera við bílinn sinn.. Ekkert smáhappíí... En þá þarf ég ekki að keyra hann á morgnanna lengur. Vvíí, en það skiptir s.s. ekki máli því að maður er orðin svo vanur því að vera keyra hann á milli! Vakna hvort eða er við klukkuna hans á morgnanna.. þannig!

Ég er eiginlega ekki að nenna að vera gera neitt... þannig ég er að pæla í að setjast fyrir framan sjónvarpið eða senda honum sæta mínum sms og athuga hvort hann vilji halda mér félagsskap, þar sem að ég er ein heim:(

 Margrét!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband