Allt ófært?!

Jájá, ég get nú bara sagt það að ég var að keyra heim áðan til að sækja Óla og skutla honum í vinnuna.. Jájá ekkert mál, nema það á leiðinni heim.. þessa stuttu vegalengd, þá var var bara skafrenningur og drulla.. skaflar út á miðja götu, sem að ég tók ekki eftir fyrr en ég var á leiðinni heim! Vá það ætlar bara ekki að manni að ganga.. En það er það sem er gott við að vera á jeppa, maður setur bara í fjórhjóladrifið og keyrir svo af stað... Ég elska að eiga jeppa!!:P Það er svo gaman.. En mér eillega langar bara til að fara á snjóbretti... það er svo mikill snjórr! Liggur við að maður panti sér bara eitt stykki bretti og fái það sent heim svo að maður geti nú farið á bretti!

En annars er bara FULLT að gera í skólanum.. ég þarf að reyna að klára ritgerðina mína um Freyju.. Það gengur ekkert of vel, mætti ganga betur sko! Jájá ég ætla að fara að læra... eða lúlla! allavega að fá mér að éta.. er að elda mér pasta:)

 Síja!

Maggzz 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband